Skip to content

IMG Liðleiki & Bandvefslosun

Endurnærandi tímar gegn stirðleika

Tímar fyrir konur og karla 50+ 

IMG Liðleiki og Bandvefslosun er endurnærandi og orkugefandi námskeið þar sem unnið er í að bæta hreyfanleika, liðleika og líkamsstöðu. Hver tími inniheldur liðkandi yogaæfingar, mýkjandi teygjur og bandvefslosun með nuddboltum. Notaðir eru nuddboltar til að nudda og næra bandvefinn en við það mýkist bandvefurinn og blóðflæði eykst til vöðvanna. Æfingar með nuddboltum draga úr óþarfa vöðvaspennu, bólgum og eymslum í líkamanum.

Óþarfa vöðvaspenna og vöðvabólga getur skapast útfrá stífum bandvef og rangri eða einhæfri líkamsbeitingu. Í tímunum er unnið í að leiðrétta líkamann í gegnum spennulosandi æfingaferli sem miðar að því að skapa meira jafnvægi í líkamanum, bæta líkamsástand og líkamsstöðu.  Rólegir tímar með áherslu á aukna líkamsvitund og sjálfsvinnu, þar sem hver og einn lærir að skynjar sín mörk og líkamann út frá sjálfum sér.  

Tímarnir eru 1x í viku, kærkomin viðbót við aðra líkamsrækt en einnig kjörið námskeið fyrir alla sem vilja hlúa að líkamanum, óháð annarri þjálfun. Námskeiðið er ætlað byrjendum jafnt sem lengra komnum. Dásamlegir tímar sem stuðla að endurheimt, meiri hreyfanleika, liðleika og vellíðan.

Skráning er hafin á 4 vikna kynningarnámskeið!

Tímabil: 20.05 – 10.06. Tímar miðvikudaga kl.16:50 – 17:40.

1x í viku, 4 skipti. Verð: 9.400 kr.

  • Aðstaðan – kennsla fer fram í íþróttamiðstöðinni Ásgarði Garðabæ, í speglasalnum á 2.hæð. Mjög fín aðstaða með aðgengi að búningsklefum. Einnig er tilvalið að nýta sér sundlaugina með en þar er infrarauð gufa ásamt heitum og köldum pottum. Aðgangur að sundlaug greiðist sér í afgreiðslu sundlaugar.

Skráning og nánari upplýsingar eru í gegnum netfangið irma@internet.is eða í gegnum heimasíðuna,
smellið á “ýttu hér til að skrá þig” , hér fyrir neðan. 

Orkuflæði - Jafnvægi - Vellíðan

IMG_3512
IMG_7178